11.3.2009 | 22:35
Það þarf að endurgera 'Confessions of a Shopaholic'
Hvers vegna er alltaf verið að tönnlast á því að konur séu verslunaróðar. Lítið í kringum ykkur. Ég held að það séu karlarnir í stóru fyrirtækjunum sem hafa verið á verslunarfylleríi ef eitthvað er. Það er alltaf verið að segja að heimurinn væri ekki svona slæmur ef konur fengju meiri völd. Hmmm, ég held að ef tölur væru lagðar saman um hvað fer í eintómt shjopperí hjá konum (þá meina ég allt sem fellur ekki undir að kaupa matvæli og nauðsynjar), þá held ég að kallarnir fengju verðlaunin! Og það skammarverðlaun í þetta sinn.
Þegar við förum út að versla og förum í svokallað 'retail therapy' komum við kannski heim með pils og skó í stíl, en við komum ekki heim með heilu búðina!!! Já já, Jón Ásgeir og fleiri voru 'að fjárfesta' eða 'festa kaup á' eða 'eignast' verslanir og fyrirtæki út um víðan heim. Hvernig eignast maður óvart einhverja verslun, jú maður kaupir hana er það ekki? Tvískinnungur og hræsni einkenna heiminn í dag, konur eru kaupóðar af því að þær koma heim með poka sem í er flík, á meaðn karlinn röltir rólega heim á leið með krítarkort í vasa of finnur ekkert fyrir þyngdinni af Topshop/Miss Selfridge / Oasis (guð það er ekki hægt að nefna neina verslun sem Jón Ásgeir á ekki ... eða átti réttara sagt) sem hann var að kaupa fyrr um daginn. Hann var að vinna fyrir heimilinu á meðan hún var að spandera peningunum sem hann/hún vann svo mikið fyrir.
Síðan ég byrjaði í námi hérna í Skotlandi hef ég verið að versla við fleiri íslensk fyrirtæki en skosk / ensk. Hvert sem ég fer ... fyrir utan Boots!!!
Iceland, Lakeland, Bear Factory, Frasers, Hamleys, Miss Selfridge, Topshop, Topman, Oasis, Karen Millen ... listin heldur áfram og nóg var af að taka. (Og ég veit Jón Ásgeir og co áttu ekki allar þessar verslanir (kannski flestar en ekki allar), en þau fyrirtæki nefnd hérna voru í eigu íslenskra eiganda á einum eða öðrum tímapunkti). Það munaði líka minnstu að Íslendingar eignuðust Woolworth's, það liggur við að ég hefði vonað að svo hefði orðið ef það hefði forðað Woolies frá falli, en aftur á móti var ég fegin að Íslendingar eignuðust hana ekki. En það er gríðarleg eftirsjá af Woolies. Núna veit ég ekkert hvert ég á að fara til að shjoppa (fyrir utan matvæli og nauðsynjar!!!).
Góða fréttin í dag var samt að einhvers staðar í Bretlandi (var ekki að fylgjast svo vel með fréttunum) að það er búið að opna eina af gömlu Woolworth's búðunum, undir nýju merki, Wellworth's og nú vona ég bara að það vaxi og dafni og nái upp til Glasgow bráðum.
Þannig að ég legg til að þeir endurgeri myndina 'Confessions of a shopaholic' eða geri svona mocku-mentary / documentary um alsherjar fall efnahagsins í heiminum. Held að karlarnir væru í aðalhlutverki í þeirri mynd!!!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.