Ég er ekki svo dugleg

Ég sé það að ég er ekkert dugleg að blogga.  Allavegana ekki undanfarið og þá sérstaklega ekki hérna.  Á ennþá eftir að venjast því að vera að blogga svona fyrir alþjóð, hitt bloggið mitt er svo fínt, því þar eru bara vinir og vandamenn að böggast út í mann.  Fólk sem þekkir mann inn og út, og jafnvel þeir láta mig að mestu vera í friði.  Ég hef verið að skoða ýmislegt á mogga blogginu og verð að segja það að það eru margir hörundsárar sálir hérna tilbúnar til að misskilja, móðgast og atast út í athugasemdir og færslur hjá höfundum.  Ég er svoddan aumingi að ég á erfitt með að taka gagnrýni.  Það kemur eflaust eitthvað frá föðurfjölskyldunni minni, enda er hún stór furðuleg með meiru.  Bara sem dæmi, um að lítast illa á gagnrýni, þá er ég núna að bíða í ofvæni eftir einkunum úr lokaprófunum mínum.  Það veltur allt á þeim hvort ég útskrifist núna í lok júní eða ekki.  Síðan 1. maí kom hef ég verið á netinu á hverjum einasta degi, meira að segja um helgar, að athuga hvort að einkunnirnar væru nú loksins komnar, en ekkert bólar á þeim ennþá.  Og núna þegar júní er skollinn á og ég veit að það fer að styttast enn meira í að ég fái einkunnirnar blessuðu, þá er eiginlega sú tilfinning mest hjá mér að mig langar bara ekkert til að fá einkunnirnar.  Þá veit ég hvað ég var að klúðra miklu og ef ég hef ekki staðið mig nógu vel þá tek ég þetta sem gagnrýni á mig, hversu arfa vitlaus og heimsk ég var að ráða ekki við prófið betur en þetta.

En mér finnst gaman að blogga, ekki það.  Mér finnst líka gaman af athugasemdum, en ég er bara svo vön að vera að blogga bara um mig og hvað ég er að bralla að ég veit ekki hvernig ég á eftir að pluma mig með að tjá mig um málefni líðandi stundar.  Svo er hryllilegt hvað mér finnst erfitt að blogga á íslensku.  Ég reyni að vanda mig eftir bestu getu en enskan er eitthvað orðinn svo stór partur af mér að mér reynist þetta örðugt.  Samt vil ég eftir megni tala og skrifa góða íslensku.  ´

Þess vegna finnst mér leiðinlegt þegar ég er að skoða blogg hjá skemmtilegum bloggurum sem leggja sig í mun við að skrifa góða íslensku og fjalla um íslensk mál, hversu mikið þeir eru gagnrýndir fyrir það einmitt að vilja tala og skrifa fallega og góða íslensku.  Það er eins og það sé í tísku að vera illa máli farinn og fyrir suma er það mikið mál, jafnvel jafnréttismál, að þræta fyrir það að það eigi ekkert að vera að gagnrýna aðra eða reyna að fá fólk almennt til að leiðrétta leiðinlegt mál.  Það eru ófá tungumál sem ég hef lagt nám á í gegnum tíðina; íslenska, danska, enska, franska, þýska, gelíska (skosk nútímatunga), forn írska og forn welska.  Ég hef einstaklega gaman af tungumálum og er sannfærð um að ef þú vilt geta tjáð þig sem best, hvort sem það er á þinni eigin tungu eða öðru framandi máli þá skiptir miklu máli að kunna að nota málið og nota það rétt.  Það er ekkert rosalega fallegt eða skemmtilegt að heyra fólk illa talandi á sinni eigin tungu en finnast það bara allt í lagi af einhverjum óskiljanlegum ástæðum.  Allavegana hef ég aldrei heyrt góða afsökun eða ástæðu frá þeim sem eru ósáttir við gagnrýni um málfar.

Jæja, ætli það sé ekki komið gott í bili.  Ég er búin að rembast eins og rjúpan við staurinn að reyna að koma þessum pistli skilmerkilega til skila.  Eflaust á hann eftir að koma illa við einhverja, enda hafa þeir aldri átt erfitt með að tjá sig, sá hópur blogg lesara.  En ég er að gefast upp og ætla að fara að hvíla mig á íslenskunni augnablik.  Veit að þegar mig er farið að langa að skrifa "kvíla mig" og "mig lángar" á blað þá ætti ég að fara að sofa.


Meistari ...eða ekki

Ég hef unun af spurningaþáttum, en vil þó helst að þeir uppfylli ákveðin skilyrði.  Ég var að horfa á Meistarann í gær og verð að segja að ég var allt annað en ánægð.  Í þættinum var birt mynd af manni og spurt var hvar hann væri leiðtogi lands og honum var gefinn titillinn ,seashjokk' (að því er ég best heyrði, en ég verð að játa að mér finnst Logi Bergmann ansi góður að tuldra og er oft illa frambærilegur málrómur hjá honum og því illskiljanlegur).  Ég þekkti strax hver maðurinn var og var þetta Bertie Ahern forsætisráðherra Írlands.  Þess vegna skildi ég bara ekkert í þessu orði sem Logi Bergmann var að troða upp á manninn og sama hvað ég reyndi gat ég ekki með nokkru móti skilið hvernig þetta ,seashjokk' orð ætti að líta út á írsku*.  Reyndar get ég svarið fyrir því að Bertie Ahern forsætisráðherra Írlands hefur ekki titil sem hljómar svona heldur er það réttilega 'Taoiseach'.

 Ég hef hérna fengið hjálp frá Wikipediu í sambandi við hljóðfræðina á þessu orði en það er svona: An Taoiseach (/ˈtiːʃɒx/ or /ˈtiːʃɒ/) — fleirtala: Taoisigh (/ˈtiːʃiː/ or /ˈtiːʃɪg/) (ef við förum aulaleiðina þá er þetta nokkuð skonar svona framburður [toj-sje-och(x)]! Þetta orð er notað yfir forsætisráðherra eða leiðtoga landsins.  Og endirinn á orðinu er mjúkur, ekki eins og K-hljóð heldur eins og mjúkt G-hljóð (sag) eða X-hljóð.

Betur er hægt að fræðast um þennan titil og írska þingheiminn hérna; Wikipedia og svo má læra meira um forsætisráðuneyti Írlands hérna; Roinn an Taoisigh.

*írska; í daglegu tali er talað um írsku (irish) en ekki gelísku (gaeilge), en það er talað um skosku sem gelísku (enska: gaelic; gelíska: ghádligh).  Þannig að á Írlandi er töluð írska og í Skotlandi er töluð í Gelíska.  Skoska er svo annað mál (eða það má frekar tala um mállýsku í því sambandi).


Eurovision spá

+15°C / 59°F
This is as warm as it gets in Iceland, so we'll start here.
People in Spain wear winter-coats and gloves.
The Icelanders are out in the sun, getting a tan.
+10°C / 50°F
The French are trying in vain to start their central heating.
The Icelanders plant flowers in their gardens.
+5°C / 41°F
Italian cars won't start.
The Icelanders are cruising in Saab cabriolets.
0°C / 32°F
Distilled water freezes.
The water in Hvita river gets a little thicker.
-5°C / 23°F
People in California almost freeze to death.
The Icelanders have their final barbecue before winter.
-10°C / 14°F
The Brits start the heat in their houses.
The Icelanders start using long sleeves.
-20°C / -4°F
The Aussies flee from Mallorca.
The Icelanders end their Midsummer celebrations. Autumn is here.
-30°C / -22°F
People in Greece die from the cold and disappear from the face of the earth.
The Icelanders start drying their laundry indoors.
-40°C / -40°F
Paris start cracking in the cold.
The Icelanders stand in line at the hotdog stands.
-50°C / -58°F
Polar bears start evacuating the North Pole.
The Icelanders navy postpones their winter survival training awaiting real winter weather.
-60°C / -76°F
Myvatn freezes.
The Icelanders rent a movie and stay indoors.
-70°C / -94°F
Santa moves south.
The Icelanders get frustrated since they can't store their Brennavinn outdoors.
The Icelanders navy goes out on winter survival training.
-183°C / -297.4°F
Microbes in food don't survive.
The Icelandic cows complain that the farmers' hands are cold.
-273°C / -459.4°F
ALL atom-based movement halts.
The Icelanders start saying "it's cold outside today."
-300°C / -508°F
Hell freezes over,
Iceland wins the Eurovision Song Contest.


Snilldarfærsla kapút

Það er svo margt um að vera hjá mér að ég ætlað að reyna að hnipra nokkrum setningum niður á blogg færslu.  Það gekk framan af bara vel og svo var ég búin að klára að ég taldi og fór í að vista færslu og svo bara kapút, ekkert og færslan farin til fj...  Þannig að nú verð ég að byrja upp á nýtt og er algjörlega andlaus.

Gerðist svo fræg í gær að panta útskriftarfötin mín á netinu.  Skikkju og trefil, á eftir að líta út eins og Harry Potter barasta, eða frekar eins og Hermione Granger því að ég tilheyri víst kvenkyninu.  Tók mig til og pantaði ljósmyndatöku líka. Ooo, ég er að verða spennt, nú er bara að vona og sjá hvort ég hafi ekki náð öllum prófunum og fái að útskrifast.

Svo er ég byrjuð í vinnunum mínum.  Jamm þær eru tvær í ár.  Ég er samt svo heppin að þetta eru þannig vinnur að ég fæ að ráða mér sjálf mikið til með tímann sem ég er að vinna.  Sem þýðir að ég dúkka bara upp hér og þar hjá vinnuveitendum mínum að óvörum.  Í báðum vinnunum er ég mikið í tölvunni og þeirri sem ég var í í dag snýst málið mikið um innslátt af alls konar upplýsingum, þannig að það er gott að taka sér frí inn á milli.  Þannig að ég er komin með skrifborð inni í litlu herbergi sem ég fæ að hafa fyrir mig sjálfa þar sem ég get dundað mér að rannsóknar og þýðingar vinnu.  Byrjaði einmitt í dag.  Er búin að þýða heila málsgrein úr welsku yfir á íslensku og er að styðast við 2 aðrar útgáfur á ensku við það.  Svaka fjör og mikið gaman.  Þetta verður heljarinnar gaman og skemmtileg vinna og ég á eftir að missa mig í að skipuleggja og raða og ganga betur frá heimildum og upplýsingum á staðnum líka.  Algjörlega ákkúrat eitthvað fyrir mig. 

 


Búin að vera of lengi í útlandinu

Það er greinilegt að ég er búin að vera of lengi í útlöndum því að nú á ég erfitt með að skilja einföldustu setningarnar.  Oft getur það verið frekar kómískt, ekki svo gott þegar það á við frekar alvarlegar fréttir en það er erfitt að standast það að deila þessu með fjöldanum.

Þessi titill er á grein á síður FreedomFries sem ég var að glugga í.

American "Family" Association kennir skorti á rasskellingum um fjöldamorðin í Virginíu

Þetta er frekar alvarlegt mál en þegar ég var að lesa yfir titilinn rak ég augun í orðið 'rasskellingum' og ég í minni einlægu heimsku gat ekki með nokkru móti áttað mig á þessu orði og skildi ekkert hvernig kerlingar þetta væru.  Hvað í ósköpunum væru 'rass- kellingar'.  Ég verð að viðurkenna að ég varð frekar skömmustuleg þegar ég loksins fattaði hvaða orð ég væri að klúðra svona svakalega.  En svona er ég nú doltið vitlaus stundum.  Allir eiga sín 'moments' víst.  Þetta var eitt af mínum.  Annars er oft mjög fróðlegt að glugga á síðununa hjá FreedomFries.

Eitt annað skipti sem mín sérstaka lesning á titlum á greinum og skiltum kom mér smá spánskt fyrir sjónir er skiltið frá VÍS 'Tryggjum dýrin',  einhvern veginn tókst mér að lesa það sem 'Tyggjum dýrin' og fannst það bara ágætis ábending.


Alba gu bráth!

Ég er búin að búa í Skotland í tæp fjögur ár og hef verið að leggja stund á nám í Keltneskum fræðum, þá sérstaklega menningu og tungumálum.  Reyndar er áhugasvið mitt bundið við tímabilið frá 700 – 1200 en það hefur ekki komið í veg fyrir að ég hafi sankað að mér þekkingu og skilning úr öðrum fögum þessu tengdu og öðrum tímabilum mennaringarsögu Skotlands.  Allur þessi lærdómur hefur veitt mér sérstaka innsýn í skoska menningarsögu í gegnum tíðina. 

     Nú standa yfir kosningar í Stóra Bretlandi og það kemur náttúrulega Skotlandi einnig við.  3. Maí munu þeir ganga til kosninga um framtíð Stóra Bretlands sem og Skotlands.  Undanfarið hef ég verið að sjá auglýsingar frá framboðsflokkunum og áróður þeirra á móti öðrum flokkum í landinu er mikill. 

     Fyrir nokkru sá ég þátt sem heitir Mock the Week, þar sem þeir félagar voru að gera gys að leiðtogum landsins Tony Blair og Gordon Brown.  Það er mikið búið að tala um það að Gordon Brown muni taka við sem forsætisráðherra Bretlands þegar Tony Blair hættir og margir bíða eftir því með óþregju.  Þess vegna var það frekar fyndið þegar einn stakk upp á það síðasta sem Tony Blair myndi gera, bara til að fara í taugarnar á Gordon Brown væri að gefa Skotlandi sjálfstæði og gera þannig út um möguleika Gordon Browns til að verða forsætisráðherra.  Gordon Brown er frá Skotlandi og ef Skotland yrði sjálfstætt ríki væri Gordon Brown ekki lengur gjaldgengur sem stjórnmálaleiðtogi í Englandi!  Öllu gamni fylgir nokkur alvara.

     16.Janúar 2007, ‚héldu‘ Englendingar og Skotar upp á 300 ára afmæli ‚Act of Union‘.  Í tilefni þess var skrifuð grein í The Independent um hvað myndi gerast ef Skotland myndi ná sjálfstæði?  Þær gróu sögur hafa lengi gengið að Skotland gæti aldrei þrifist sem sjálfstæð þjóð innan um allar hinar þjóðirnar í kring.  Þetta er einn sá grófasti áróður sem ég hef heyrt og er til þess gerður einungis til að halda þjóðinni niðri.  Þetta viðgengst enn í dag og ekki engöngu skorðaður við England, heldur hefur Danmörk notað þessi rök líka fyrir sjálfstæði Færeyja.  Ef Íslendingar hefðu ekki staðið fyrir sínu og hrifið til sín sjálfstæði 1944 værum við ennþá að glíma við Danmörku.  Því hvað erum við ef ekki agnarsmátt ríki í miðju Atlantshafi,  og samgöngulega séð, mun verr statt en Skotland gagnvart Englandi og öðrum Evrópuríkjum.

     Þetta er ekkert nema lygar, tilkomnar af því að England vill ekki missa Skotland, bæði gagnvart auðlindum og mannskap.  Í greininni sem ég minntist á hér að ofan eru tiltekin þau mál sem mest kæmu í veg fyrir að Skotland gæti staðið á eigin fótum í efnahagsheiminum.  Álitið á Skotum er lítið ef litið er til Englands og jafnvel Skotlands sjálfs.  Í Skotlandi er mest tíðni örorku- og atvinnuleysisbót, þá sérstaklega í Glasgow, Skotar eru heilsuverstir af þeim sem teljast til Stóra Bretlands og því fylgir auðvitað útgjöld.  Álitið er því það að Skotar eru engu verri en hver önnur sníkjudýr sem lifa á vinnu annarra.  Það er bara alls ekki rétt.   Það er ekkert sem segir að allur peningurinn sem fer í hin ýmsu störf og bætur í Skotlandi komi allur frá Englandi, Skotar standa vel undir sér í dag og þótt að ef til skilnaðar kæmi og mögur ár yrðu frammundan til að byrja með, þá hefur Skotland alla þá burði til að standa sig með sóma gagnvart þegnum sínum þegar á tindinn væri komið.  Skotland hefur líka sitt að segja í pólitísku umhverfi Evrópu og á meðan Skotland er bundið við England hafa þeir lítil völd til að koma sínum málum á framfæri.  Þeir sem eru á móti aðskilnaði Skotlands og England þræta fyrir að ef til þess kæmi þá myndi Skotland ekki fá aðganga að Evrópusambandinu eða Myntbandalanginu en þessi rök eiga alveg eins við sjálfstætt England og við sjálfstætt Skotland.  Það er mergur málsins!  Það sem gæti snert sjálfstætt Skotland mun einnig hafa áhrif á England.  Skotland er á móti vopna aukningu landsins (s.s. Trident kjarnokrukafbátnum sem auk þess mun vera í höndum Bandaríkjastjórnar að stýra en ekki Stóra Bretlands).  Það sem myndi gerast við aðskilnað þessara tveggja ríkja er að England mun missa mikilvægan stuðning og mannskap í stríðinu við Írak og Afganistan og England mun tapa efnahagslega af innkomu frá auðlindum Skotlands.  Skotland er þegar með sitt eigið þing og þegar vel í stakk búið við að taka við frekari ábyrgð fyrir þegna sína.

     Ef Skotland fær tækifæri til að sanna sig á alþjóða markaði gagnvar öðrum þjóðum mun það hvergi standa þeim langt að baki.  Skotland er vel í stakk búið til að mæta þeim vandamálum sem upp gætu komið við aðskilnað en þegar á heildina er litið mun Skotland vera mun betur sett sem sjálfstætt ríki heldur en að halda áfram sem nyrsti garður Breska samveldisins.  Þótt Skotland fái sjálfstæði mun það samt sem áður teljast til aðildaríkja Stóra Bretlands, drotningin mun ennþá vera drottning þeirra sem og annarra fyrrverandi ríkja heimsveldis Breta.  Sendiráð vítt og breitt um heim er mörg í samstarfi við önnur ríki og það ætti ekki að vera neitt vandamál hjá þeim að halda áfram samstarfi við Skotland í þeim efnum.

     En England er hrætt.  Ef Skotland fær sjálfstæði, þá eiga Norður Írland og Wales eftir að heimta sjálfstæði líka.  Það er það sem gæti kostað Englendinga mest, að missa þessi þrjú ríki.  Efnahagur Englands myndi verða verst úti í aðskilanði þessara ríkja, en það er ekkert sem segir að þegar til lengri tíma er litið að England sem og Skotland, Norður Írland og Wales gætu ekki staðið sig vel á alþjóða markaði sem verðugir andstæðingar í atvinnu- og tækni þróun.  Þessar þjóðir gætu þess vegna staðið sig mun betur á þessum sviðum ef ekki væri fyrir kúgun hræddra Englendinga að missa stöðu sína sem stórveldi í Evrópu og heiminum.

Það er kominn tími til að Skotland fái viðurkenningu sem ríki, vandamálið hefur alltaf verið að Skotland hefur aldrei verið viðurkennt ríki og í gegnum söguna hefur enginn getað sagt fyrir vissu hvar og hvernig Skotland skiptist, en það vandamál á við um mörg ríki Evrópu í dag sem eru að berjast fyrir viðurkenningu.  Hvenær á ríki rétt á sér og hvenær ekki.  Ef Ísland væri ekki eyríki værum við í sömu vandræðum með að vera viðurkennt ríki innan um önnur.  Hver á að segja til um hvar landamæri eigi að vera og hvar ekki.  Talaðu við Skotana úti á götu, allir eru þeir skoskir og þeir tilheyra Stóra Bretlandi en fyrir alla muni, kallaðu þá aldrei Englendinga.

 ps. skoðið þessi tvö myndbönd.  Í fyrstu sýnast þau eins en fljótlega sést munurinn.

Myndband 1;

Myndband 2;

Og bara til að bæta við, þá er ég algjörlega fyrir sjálfstæði Skotlands.

Alba gu bráth > Skotland að eilífu!


Glasgow

Jæja, ég er komin til Glasgow aftur og núna klukkutíma á undan veröldinni heima.  Verð að segja það að þótt að ég hafi komið til Skotlands í gær, er ég ennþá á tímanum heima.  En þetta er að koma þótt að ég vakni á vitlausum timum, er svöng á vitlausum tíma, borða á vitlausum tíma og í alla staði 'out of sync' ef svo má að orði komast.  Hef þess vegna farið hægt í lærdóm í dag en er búin að skipuleggja mig út í ystu æsar og gaman byrjar fyrir alvöru á morgun.  Þegar ég var búin að setja þetta svona niður á blað, þá virðist þetta ekki vera neitt svo svakalegt það sem bíður mín, en ég á eflaust eftir að kvarta nóg þegar yfir er staðið.

Þarf svo að vakna eldsnemma á morgun til að vera klædd og komin á ról áður en það verður bankað upp á hjá mér með pakka til mín.  Ég á von á splunku nýjum ipod-spilara á morgun, sem ég var að kaupa mér.  Hlakka svo til, því að minn gamli dó fyrir tveim vikum síðan, eða nákvæmlega þegar ég kom heim.  Bróðir minn hirti þann gamla og ætlar að sjá hvort hann geti náð að skipta um harðadisk í honum, hann er svoddan snillingur og dundari.

Það er búið að vera steikjandi hiti hérna og sól og greinilegt að allir Glasgow-búar ætla að njóta þess í botn.  Fór röltandi niður á Byres Road í dag og labbaði í gegnum Botanic Gardens og það var bara ekki þverfótandi fyrir fólki að njóta veðurblíðunnar.  Það tók mig þó nokkurn tíma að átta mig á því að það var mánudagur í dag, enda ekki vön að sjá svona marga í garðinum á þessum tíma.

En núna þarf ég bara að fara flytja rassinn á mér yfir á eitthvað mýkra en þennan skrifborðsstól, er búin að sitja hérna allt of lengi og verð að skipta um útsýnisstað.  Ætla að fara að planta mér fyrir framan sjónvarpið það sem eftir er kvöldsins.

 Annars verð ég, áður en ég hætti, að koma fram alveg frábærum fréttum.  Ég sótti, fyrir um þremur vikum síðan, um að komsta í M.Litt í Scottish Medieval Studies á næsta ári og ég var að fá svar um það að þeir hafa samþykkt umsóknina mína!!!


Er að læra

Ég er búin að vera á landinu núna í átta daga og á viku eftir.  Kom heim í smá upplestrarfrí.  Ég fæ víst ekki að vera heima yfir páskana því að ég þarf að fara í próf strax 10.apríl.  Þetta verður strembin prófatörn hjá mér en þetta þýðir líka að ég verð komin heim fyrr en venjulega.  Síðasta og fjórða prófið mitt er 18.apríl. 

Það er alltaf gott að koma heim og fá að lúlla í sínu eigin rúmmi.  Það er líka bara gott að geta hitt og talað við annað fólk.  Er búin að nota tímann til að hitta vini mína, þá sem eru landinu, það er að segja.  Búin að skella mér í bíó á okurverði, verður að segjast en naut þess í botn ekki síður.  Búin að troða mig út af yndislegum íslenskum mat og góðgæti.  Næ víst ekki í neinar fermingarveislur, en það er allt í lagi, mér hefði víst ekki verið boðið í neinar heldur, þetta er allt frekar fjarskylt fólk sem rétt veit kannski að ég er til en ekki mikið meira.  En ég finn það að eftir því sem ég er lengur erlendis því meir langar mig að nýta öll þau tækifæri sem gefast að til að hitta vini og ættingja.

Eitt sem ég hef rekist á og vinkona mín, sem er erlendis líka, hefur rekist á þetta einnig er að við eigum báðar frekar erfitt með að halda hversdagslegar samræður við fólk sem við höfum ekki hitt lengi.  Við erum svo gegnsýrðar af námsefninu og hugur okkar svo upptekinn af því að þýða allt frá einu tungumáli yfir á annað að þegar við stöndum fyrir framan fólk sem við höfum annað hvort ekki séð áður eða í langan tíma þá eigum svo svolítið erfitt með að tala frambærilega.  Meira að segja móðir mín hefur tekið eftir því að stundum finnst henni eins og hún sé að tala við útlending þegar hún er að tala við mig.  Ég nefndi þetta við vini mína í gær og einnig það að ef þetta héldi áfram hjá mér á ég eftir að sækja um að fara á námskeið í íslensku fyrir útlendinga.  En þau sögðust hafa alla trú á mér þannig að ég verð bara að stóla á að vinir og ættingjar hjálpi mér í að aðlagast íslensku samfélagi aftur.


Tíminn líður

Það eru innan við tvær vikur þangað til ég kem heim í páskafrí.  Það er reyndar erfitt að skilgreina þetta sem frí, þar sem ég mun vera að læra fyrir vor prófin.  Verð að segja að ég bæði hlakka til og ekki.  Það verður enginn smá léttir þegar 14. mars rennur loks upp.  Þá verð ég (eða þá á ég að vera) búin með öll fyrirliggjandi verkefni.  Er einmitt búin að vera að strita yfir þriðju og síðustu ritgerð annarinnar og ég náði líka að klára þýðinguna fyrir skila verkefni fyrir Velsku í kvöld.  Ég er að vonast eftir að klára ritgerðina á morgun.  Það þýðir að á þremur helgum er ég búin að ná að framleiða 3 x 2000 orða ritgerðir.  Ekki slæmt það.  En ég á enn þá eftir að fara yfir hinar tvær til að gera þær tilbúnar fyrir skil og svo þarf ég að fara yfir textann sem ég var að þýða í velsku og undirstrika, sagnir, ákveðnar stökkbreytingar sem verða á samhljóðum (initial mutation), forsetningar og fornafns viðskeyti (infixed pronouns).  En það tekur engan tíma sem betur fer.  En það verður gott þegar þessi törn er búin en þá tekur bara sú næsta við í staðinn.  Enhvern veginn hlakka ég ekki til þess að fara að læra fyrir Old Irish prófið, það er svona álíka ánæguleg hugsun og að vita að ég þurfi að fara til tannlæknis í rótarfyllingu (sem ég reyndar þarf ekki), það væri bara tvöföld (ó)ánægja.

Þarf samt að fara að reyna að drífa þetta af svo ég hafi tækifæri til að hitta eitthvert fólk áður en ég fer heim.  Hef verið að vanrækja Sharon, Lewis og Lauru allan tímann eiginlega.  Er ekki sátt, en hvað á maður að gera þegar skólinn hefur slíkt tangarhald á manni.  Vonandi bara að þetta sé þess virði að eiga ekkert félagslíf.


Stressið að fara með mann

Ég sit hérna í herberginu mínu í Glasgow að farast úr stressi.  Það kemur venjulega þegar álagið er að fara með mig.  Ég byggi upp einhvern ósýnilegan hjalla af verkefnum sem mér finnst ég ekki geta náð að vinna úr nógu hratt.  Ég er alls ekkert að falla á tíma, en mér finnst ég vera að falla á tíma með að vinna úr hlutunum á þægilegum tíma.  Ef þetta meikar eitthvað sense?

Á föstudag eyddi ég þremur klukkutímum í verkefni fyrir Welsh Poetry sem ég þarf að skila í þessari viku.  Ég náði að klára verkefnið að mestu leyti en það er eitt og annað sem ég þarf að skoða betur áður en ég skila.  Ætla að reyna að klára það í kvöld.  En einmitt núna er ég að einbeita mér að ritgerð fyrir Old Irish.  Er að skrifa um 'the rhetoric' eða orðagjálfur í sögunum Fingal Rónáin og Orgain Denna Ríg, og ég verð að viðurkenna það að ég er orðin rangeygð af tilraunum til að koma mínu orðagjálfri niður á blað.

Þegar ég klára þessa ritgerð verð ég að demba mér strax í það að skrifa næstu ritgerð í Middle Welsh, þar sem ég tala einmitt aftur um orðanotkun og tungumál í velsku sögunni Pwyll Pendeuic Dyuet.  Og eftir það bíður mín sú skemmtilega ritgerð fyrir Welsh Poetry að skrifa um ljóð Y Dref Wenn (The white town), ljóð sem ég valdi sjálf og hvort ljóðið sýni 'anti-millitarist rethoric in the englyn cycles of the Cynfeirdd period'?  Þetta verð ég að játa er eina ritgerðin sem mig hlakkar til að skrifa um, en þangað til er ég að farast úr stressi.  Sérstaklega þar sem ég þarf að vera búin að öllu þessu helst fyrir 9.mars og ofan á það þá veit ég af allavegana einni þýðingu til að skila inn í velsku áður en páskafríið byrjar.  Og kannski á ég von á að skila inn þýðing úr Orgain Denna Ríg.

En það nú nördatal, verð að segja það á svona stundum held ég að ég hafi lagt út í þetta af því að mér finnst gaman að þjást.  En aftur á móti, þegar ég er búin að skila inn verkefnum, þá líður mér svo vel og ég er svo stollt af mér að ég veit að ég valdi þetta af því að þetta veitir mér ánægju.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband